Velkomin á kortasafn.is
Kortasafn.is er ný vefsíða sem ætlað er vekja athygli á slæmri stöðu safna sem geyma landfræðileg gögn á Íslandi. Kort, loftmyndir, gervitunglagögn, stafræn kortagögn og svæðistengd töluleg gögn eru dreifð um allt samfélagið. Söfnin eru víðast lítt skráð, ósamræmd og skrár eru sjaldnast birtar á Netinu, auk þess sem mörg söfn eru geymd við óhentugar aðstæður. Samræmd skráning, markvissari varðveisla og birting upplýsinga er nauðsynleg til að síðar megi koma upp samræmdu vefviðmóti fyrir aðgengi að slíkum gögnum á Netinu.
samsett-net.jpg
Tenglasafn
Örnefnasöfn

Hér eru upplýsingar um ýmis örnefnasöfn.



Skráningar
Það eru 2 tenglar í þessum flokki.
Bæjatal - Bæir í stafrófsröð Vinsælt
Bæjatal er undirsíða á vefsíðu Örnefnastofnunar Íslands, en þar  má leita að bæjum á Íslandi eftir stafrófsröð.
Örnefnaskrá Íslands Vinsælt
Leitarvefur fyrir örnefni á Íslandi, þar sem hægt er að sjá staðsetningu nafna og velja mismunandi gerðir korta sem undirlag. Höfundur er Marin Kardjilov.

Niðurstöður 1 - 2 af 2
<< Byrjun < Fyrri 1 Næsta > Endir >>