Forsíða arrow Um okkur
samsett-net.jpg
Um okkur PDF Print Senda

Kortasafn.is er ný vefsíða (apríl 2007) sem ætlað er að vekja athygli á bágri stöðu safna landfræðilegra gagna á Íslandi og auka umræðu mögulegar úrbætur. Landfræðileg gögn (kort, loftmyndir, gervitunglagögn, stafræn kortagögn og önnur staðtengd töluleg gögn) eru dreifð um allt samfélagið. Þau eru víða lítt skráð, ósamræmd, skrár eru sjaldnast birtar á veraldarvefnum, auk þess sem mörg safnanna eru geymd við óhentugar aðstæður. Samræmd skráning landfræðilegra gagna, markvissari varðveisla og birting upplýsinga um þau á Netinu er mikilvægur undanfari umræðu um að koma upp samræmdu vefviðmóti fyrir aðgengi að slíkum gögnum hér á landi. Markmiðið með umræðunni er einnig að stuðla að því að til verði öflugt korta- og fjarkönnunargagnasafn hér á landi og að farið verði að vinna markvisst að því að þróa samræmd upplýsingaverkefni á þessu sviði og birta þau á veraldarvefnum.

Eigandi og ábyrgðarmaður vefsíðunnar er Þorvaldur Bragason landfræðingur og upplýsingafræðingur, sem hefur starfað á þriðja áratug að verkefnum sem tengjast landfræðilegum upplýsingum, en hann rekur m.a. vefgáttina landakort.is. Hugmyndafræðin bak við kortasafn.is er í samræmi við tillögur sem settar voru fram í meistaraverkefni Þorvaldar, sem unnið var við jarð- og landfræðiskor, innan raunvísindadeildar Háskóla Íslands en verkefninu lauk í febrúar 2007 og bar það heitið "Miðlun upplýsinga um landfræðileg gögn á Íslandi. Aðgengi, skráning og varðveisla". Á kortasafn.is eru birtar greinar sem Þorvaldur hefur skrifað annað hvort einn eða í félagi við aðra um málefni tengd landfræðilegum gögnum, auk þess sem birtir eru fyrirlestrar og pistlar sem ætlað er að auka umræðu um aðgengi landfræðilegra gagna hér á landi. 
 
Vefsíðan er á vinnslustigi og á eftir að taka breytingum hvað varðar útlit, efni, flokkun og skipulag eftir því sem verkefnið þróast og fleiri tenglar bætast við. Þar sem um tilraunaverkefni er að ræða er áhugavert að fá álit og ábendingar frá notendum um gagnlegt efni sem fellur að markmiðum vefsíðunnar. Þeir sem hafa áhuga á að styðja uppbyggingu þessa verkefnis með því að senda inn ábendingar um vefsíðuna og efni hennar, vinsamlegast sendið tölvupóst á tölvupóstfangið   (thbr hjá centrum.is).