|
Verða gögnin okkar til eftir 50 ár? |
|
Þorvaldur Bragason (2009)
Verða gögnin okkar til eftir 50 ár?
Erindi flutt á ráðstefnunni Landupplýsingar 2009, sem haldin var á vegum LÍSU samtakanna á Grand Hótel Reykjavík 1. október 2009. Í erindinu kemur fram að varðveisla landrænna (landfræðilegra) gagna er víða verulegt vandamál, en eðli þeirra, form og margbreytileiki valda því að þau þykja flókið og oft illviðráðanlegt safnefni. Tryggja þarf samstarf þeirra sem vinna á sviði landupplýsinga og þeirra sem bera ábyrgð á varðveislu menningarverðmæta í formi landrænna gagna. Í erindinu er meðal annars rætt um mismunandi gagnagerðir, stöðu þeirra og horfur í varðveislumálum. Settar eru fram hugmyndir um fyrstu aðgerðir hér á landi til að tryggja örugga langtímavarðveislu, en um leið þarf jafnframt að bæta vefaðgengi að þeim upplýsingum sem gögnin geyma. |
|
|
Lýsigögn og grunngerð landupplýsinga |
|
Bogi Brynjar Björnsson og Þorvaldur Bragason (2009)
Lýsigögn og staðlar í gagnaskipulagi
Erindi flutt á ráðstefnu, sem haldin var á vegum ArcÍs í Norræna húsinu í Reykjavík 3. apríl 2009. Í erindinu er fjallað um þrískiptingu lýsigagna í yfirlitslýsigögn, almenn lýsigögn og tæknilýsigögn. Sýnt er dæmi um það hvernig gera má þessar þrjár gerðir aðgengilegar í Náttúruvefsjá. Farið er yfir möguleika ArcInfo landupplýsingakerfa til að halda utan um tæknilýsigögn, en skráning þeirra er grundvallarþáttur í að halda skipulagi á gögnum í slíkum kerfum, auk þess að vera grunnheimild fyrir almennari gerðir lýsigagnaskráningar. |
|
|
Landfræðileg gögn og vefsjár |
|
Þorvaldur Bragason (2009)
Landfræðileg gögn og vefsjár
Erindi flutt á Ársfundi Orkustofnunar sem haldinn var á Grand Hótel Reykjavík 31. mars 2009. Erindið fjallar um vefsjár- og gagnaverkefni Orkustofnunar, þar sem rætt er meðal annars um Gagnavefsjá, Náttúruvefsjá, Landgrunnsvefsjá og fyrirhugaða nýja Orkuvefsjá. Þá er fjallað um landfræðileg gögn almennt, landrænan menningararf, skráningu lýsigagna og landræn vefverkefni. |
|
|
Frumgerð Landgrunnsvefsjár |
|
Erindi flutt á ráðstefnunni Landupplýsingar 2008, sem haldin var á vegum LÍSU samtakanna á Grand Hótel Reykjavík 22. október 2008. Í erindinu er gerð grein fyrir undirbúningsvinnu við Landgrunnsvefsjá, sem fyrst um sinn er ætlað að gefa yfirlit yfir gögn og annað efni sem aflað hefur verið af Drekasvæðinu, en verkefnið er unnið í tengslum við 1. útboð rannsóknaleyfa þar á árinu 2009. Fjallað er almennt um Drekasvæðið og helstu gögn sem til eru af svæðinu á Orkustofnun. Rætt er um gagnavinnslu, túlkun gagna og framsetningu efnis í vefsjánni. Þá er komið inn á helstu kosti við miðlun upplýsinga í vefsjánni og næstu skref í verkefninu. |
|
|
Landupplýsingar, vefsjár og lýsigögn |
|
Erindi flutt á ráðstefnunni Landupplýsingar 2008, sem haldin var á vegum LÍSU samtakanna á Grand Hótel Reykjavík 22. október 2008. Í erindinu er fjallað um mikilvægi landrænna lýsigagna á ýmsum sviðum og í ólíkum verkefnum á sviði landupplýsinga. Farið er yfir hugmyndir INSPIRE verkefnisins um framsetningu lýsigagna með nýjum netlausnum og rakið hvernig lýsigagnaverkefnið Landlýsing hefur stuðlað að uppbyggingu grunngerðar hér á landi á sviði landrænna lýsigagna, sem er grunnforsenda framtíðaruppbyggingar á þessu sviði hér á landi. Þá er fjallað um samspil landfræðilegra vefverkefna, þ.e. hefðbundnar vefsíður með landfræðilegu efni, landræna lýsigagnavefi og vefsjár og skoðað með hvaða hætti nýjar íslenskar vefsjár (Náttúruvefsjá og Landgrunnsvefsjá) auðvelda innleiðingu INSPIRE hugmyndafræðinnar hér á landi með því að samræma skoðunarþjónustu og lýsigagnaþjónustu. Að lokum er farið yfir kjarna lýsigagnastaðalsins ISO 19115 og mikilvægi yfirlitslýsigagna (Collection-level metadata) til að fá yfirsýn yfir gagnaflokka. |
|
|
Landfræðileg upplýsingamiðlun ... |
Þorvaldur Bragason (2007)
Landfræðileg upplýsingamiðlun og varðveislumál íslenskra fjarkönnunargagna
Erindi flutt á ráðstefnunni Landupplýsingar 2007, sem haldin var á vegum LÍSU samtakanna á Grand Hótel Reykjavík 17. október 2007. Erindið fjallar almennt um upplýsingamiðlun á sviði landfræðilegra gagna. Gerð er grein fyrir rannsókn á stöðu varðveislumála og upplýsingamiðlunar um íslensk fjarkönnunargögn. Bent er á verkefni sem þarf að vinna til að fá betri heildarmynd af því hvað til er af landfræðilegum gögnum sem sýna Ísland. Að lokum er rætt um mikilvægi þess að skilgreind verði samræmd opinber stefna fyrir varðveislu og miðlun upplýsinga um landfræðileg gögn er varða Ísland, hvort sem þau eru í eigu opinberra aðila eða fyrirtækja, geymd hér á landi eða erlendis. |
|
|
Landfræðileg gögn á Íslandi ... |
|
Þorvaldur Bragason (2007)
Landfræðileg gögn á Íslandi. Aðgengi á Netinu og hættumerki í varðveislu.
Miðvikudagserindi flutt hjá Orkustofnun, 21. mars 2007. Í erindinu er farið yfir grunnatriði í meistaraverkefni ÞB (febrúar 2007), fjallað um leiðir til birtingar upplýsinga um landfræðileg gögn á Netinu, farið yfir niðurstöður tveggja rannsókna sem birtar eru í greinum og fjallað um tillögur um ný upplýsingaverkefni fyrir landfræðileg gögn á Íslandi. |
|
|
Veitum við góðar upplýsingar... |
|
Þorvaldur Bragason (2006)
Veitum við góðar upplýsingar um landfræðileg gögn á Íslandi.
Sjónarmið þriggja faghópa á vinnustöðum sem taka þátt í lýsigagnaverkefninu Landlýsingu.
Erindi flutt á ráðstefnunni Landupplýsingar 2006, sem haldin var á vegum LÍSU samtakanna á Hótel Loftleiðum 26. október 2006. Í erindinu er gerð grein fyrir niðurstöðum rannsóknar sem gerð var í apríl 2006. Niðurstöðurnar birtast í heild í grein Þorvaldar Bragasonar og Guðrúnar Gísladóttur (2006). Aðgengi að gögnum og viðhorf notenda til lýsigagnavefs Landlýsingar.
|
|
|
Landfræðileg lýsigögn á Netinu ... |
|
Þorvaldur Bragason (2004).
Landfræðileg lýsigögn á Netinu. Landfræðileg gagnasöfn á Íslandi.
Erindi flutt á ráðstefnunni Landupplýsingar 2004, sem haldin var á vegum LÍSU samtakanna á Hótel Loftleiðum 30. september 2004. Í erindinu er fjallað um landfræðileg gögn og lýsigögn, samræmingarmál og ýmislegt sem tengist íslenska lýsigagnaverkefninu Landlýsingu, þ.á.m. tölfræðilegar upplýsingar.
|
|
|
Landfræðileg gögn í ljósi upplýsingamiðlunar ... |
|
Þorvaldur Bragason, Guðrún Gísladóttir og Sigrún Klara Hannesdóttir (2006).
Landfræðileg gögn í ljósi upplýsingamiðlunar og varðveislu.
Veggspjald á Raunvísindaþingi sem haldið var í Öskju, Háskóla Íslands, 3.-4. mars 2006. Kynntar forsendur og grunnhugmyndir fyrir meistaraverkefni ÞB við jarð- og landfræðiskor HÍ.
Landfræðileg gögn í ljósi upplýsingamiðlunar og varðveislu. Ágrip á íslensku (pdf).
Geographical data in light of information access and preservation. Ágrip á ensku (pdf). |
|
|