Forsíða arrow Greinar
samsett-net.jpg
Greinar
Varðveisla fjarkönnunargagna ...

Þorvaldur Bragason og Guðrún Gísladóttir (2007)
Varðveisla fjarkönnunargagna á Íslandi og miðlun upplýsinga um þau.
Landabréfið 23(1), 3-24.
Greinin birtist í Landabréfinu - Tímariti landfræðinga, en hún tengist meistaraverkefni ÞB við jarð- og landfræðiskor, innan raunvísindadeildar Háskóla Íslands (febrúar 2007). Greinin fjallar um m.a. um varðveislu, öryggismál og skráningu loftmynda og gervitunglagagna á Íslandi, en víða er pottur brotinn í þeim efnum hér á landi. Gerð er tillaga að stigskiptri skráningu fjarkönnunargagna.

 
Aðgengi að landfræðilegum gögnum

Þorvaldur Bragason og Guðrún Gísladóttir (2006).
Aðgengi að landfræðilegum gögnum og viðhorf notenda til lýsigagnavefs Landlýsingar.
Landabréfið 22(1), 49-66.
Greinin birtist í Landabréfinu - Tímariti landfræðinga, en hún tengist meistaraverkefni ÞB við jarð- og landfræðiskor, innan raunvísindadeildar Háskóla Íslands (febrúar 2007). Greinin fjallar um m.a. um hnattrænt aðgengi að landfræðilegum gögnum og leiðir sem notaðar eru til að koma upplýsingum um slík gögn á framfæri á veraldarvefnum. Birtar eru niðurstöður rannsóknar sem gerð var á viðhorfum til landfræðilegra lýsigagnamála, þar sem metin var reynsla af íslensku verkefni, Landlýsingu, á því sviði.

Nánar...
 
Heildarmyndir af Íslandi

Þorvaldur Bragason og Magnús Guðmundsson (1998).
Heildarmyndir af Íslandi
Náttúrufræðingurinn 68 (1), 17-26.
Greinin birtist í tímaritinu Náttúrufræðingnum árið 1998, en hún fjallar um gervitunglagögn af Íslandi og gerð heildarmynda af landinu eftir Landsat gervitunglamyndum frá tímabilinu 1986-1994. Heildarmyndirnar hafa verið mikið notaðar síðan af ýmsum aðulum í samfélaginu. Ein þessara mynda hefur birst reglulega í veðurfréttum Stöðvar tvö í u.þ.b. áratug og önnur var til dæmis hluti af hinum vinsæla "flugdiski" sem gefinn var út fyrir fáum árum og seldist í metupplagi.

 
Loftmyndir af þéttbýli

Þorvaldur Bragason og Magnús Guðmundsson (1995).
Loftmyndir af þéttbýli á Íslandi
Sveitarstjórnarmál 55(1), 31-34.
Grein sem skrifuð var í tímaritið Sveitarstjórnarmál til að kynna litmyndatöku af helstu þéttbýlisstöðum landsins sumarið 1994.

 
Loftmyndir

Þorvaldur Bragason og Magnús Guðmundsson (1994).
Loftmyndir
AVS 15(4), 71-74.
Grein um loftmyndatöku og loftmyndasafn Landmælinga Íslands, sem birt var í tímaritinu Arkitektúr, verktækni og skipulag.

 
Skráning loftmynda ...

Þorvaldur Bragason (1992).
Skráning loftmynda og notkun örfilma í loftmyndasafni Landmælinga Íslands
Bókasafnið 16(1), 33-36.
Grein sem skrifuð var til að kynna nýtt skráningarfyrirkomulag loftmyndasafns Landmælinga Íslands, þar sem loftmyndir voru meðal annars settar á örfilmuspjöld sem gefin voru út í stærðinni A6. Loftmyndir tímabilsins 1981-1990 (alls yfir 30.000 loftmyndir) voru birtar og gefnar út á þessu formi á yfir 500 örfilmuspjöldum sem afhent voru helstu viðskiptavinum til að auka aðgengi að upplýsingum um loftmyndasafnið. Þetta hefur verið talið stærsta formlega útgáfuverkefni á örfilmuspjöldum hér á landi.

 
Gervitunglamyndir af Íslandi í umhverfisrannsóknum og kortagerð

Þorvaldur Bragason og Magnús Guðmundsson (1991).
Gervitunglamyndir af Íslandi í umhverfisrannsóknum og kortagerð
Arkitektúr og skipulag 12(2), 87-90.
Grein þar sem rætt er um Landsat og Spot gervitunglagögn af Íslandi. Gerð er grein fyrir helstu kostum myndefnis frá gervitunglunum, möguleikum til öflunar upplýsinga um gögn, sýndur samanburður á næmni þeirra á mismunandi hlutum rafsegulrófsins og fjallað um notkun gagnanna á Íslandi.